Mögulegt er að vera með mánaðaráskrift að þjónustu til styttri eða lengri tíma, allt eftir þörf. Slík þjónusta felur m.a. í sér umönnun, vöktun í síma, almenn þrif, verslunarferðir, félagslegan stuðning og ráðgjöf fyrir einstaklinga og fjölskyldu. Þjónustupakkar Vinunar veita fólki stuðning sem vill viðhalda sjálfstæði sínu og reisn.
Áskriftarleiðirnar eru:
Aðlögun
Aðlögun er þjónustupakki gegn mánaðargjaldi og er ætlað að styðja við einstaklinginn og aðstandendur hans eftir áfall á borð við slys/fötlun/greiningu. Þjónustan er yfirgripsmikil og lýtur að alhliða umönnun og uppbyggingu innan heimilisins þegar útskrift lýkur af stofnun. Hugmyndin er að veita vandaða og ítarlega þjónustu sem nærir einstaklinginn og hjálpar honum og aðstandendum að endurmeta nærumhverfi sitt og aðlagast breyttum aðstæðum.
Aðstoð til sjálfsbjargar
fyrir einstaklinga með geðræn vandamál
Aðstoð til sjálfsbjargar er áskrift að þjónustu fyrir einstaklinga sem þurfa aðstoð vegna geðrænna vandamála og er ætlað að styðja við einstaklinginn til sjálfsbjargar og aðstandendur hans rétt fyrir útskrift eða inni á heimili viðkomandi. Þjónustan er í formi samvinnu á milli þjónustuþega, aðstandenda og viðkomandi stofnana. Með þessari þjónustu er markmiðið að létta undir með einstaklingi og aðstandendum, styrkja viðkomandi í að viðhalda færni til hversdagslegra athafna, og efla bæði einstaklingsbundið og félagslega. Vilji þjónustuþegans er hafður að leiðarljósi og virtur í hvívetna.
Áskriftaleið eldri borgara
Áskrift af þjónustu er leið sem eldri borgarar geta farið sem vilja stýra þjónustu sinni sjálfir. Áskriftin getur falið í sér ákveðna klukkustundir á mánuði með þjónustu á borð við þrif, matarinnkaup, minniháttar umönnun, vöktun í gegnum síma, samveru og bæjarferðir eða annarar aðstoðar sem viðkomandi þarfnast.
Áskriftin veitir eldri borgurum örugga og góða þjónustu á hagstæðu verði.
Áskriftin býður uppá að þú útfærir þína eiginn þjónustu. Þjónustan getur falið í sér aðstoð við athafnir daglegs lífs eins t.d böðun, yfirsetu, aðstoð við að matast, aðstoð úr og í rúmi, allt eftir því hvað við á hverju sinni.
Til að tryggja þér sem besta þjónustu er í boði reglulegt innlit hjúkrunarfræðings, sé þess óskað. Í tilfellum þar sem um mikla afturför er að ræða er eftirlit hjúkrunarfræðings mikilvæg til að ganga úr skugga um að allt ferli umönnunar sé unnið með hag viðkomandi í huga.
Vinun hefur það að leiðarljósi að tryggja lífsgæði og öryggi þeirra sem óska eftir að búa á eigin heimilum.
Sértæk þjónusta
m.a. fyrir mænuskaddaða, fólk með parkinson og aðra þá sem þurfa mikinn stuðning.
Sértæk þjónusta kemur inn á heimili fólks, þjónustuíbúðir, dagvistir og verður við sértækum þjónustuatriðum og almennri aðstoð svo fólk geti viðhaldið sjálfstæði þrátt fyrir skerta færni. Oft eru þetta þjónustuþættir sem lenda á jaðrinum við þá þjónustu sem fyrir er.
Áskriftarleið fyrir einstaklinga með mikla þjónustuþörf sem felur í sér þjónustu á þeim tíma er viðkomandi þarfnast aðstoðar, auk innlits og vöktunar. Í upphafi þjónustunnar er í boði fjölskyldu- og hjúkrunarráðgjöf, auk aðstoð við samþættingu þjónustuþátta.
Einhverfuráðgjöf og þjálfun
Einhverfuráðgjafi býður upp á ráðgjöf fyrir börn og unglinga með greiningu á einhverfurófi. Formið á ráðgjöfinni er mismunandi og sveigjanlegt, þannig getur hún farið fram „á vettvangi“ þar sem óskað er eftir stuðningi á heimili viðkomandi barns/unglings. Fjölskyldum og/eða aðstandendum stendur til boða stuðningur og ráðgjöf þar sem unnið er markvisst með vissa þætti eða aðstoð veitt á álagstímum.
Fjölskylduráðgjöf og meðferð
Þjónusta við fjölskylduna getur bæði verið í formi ráðgjafar og meðferðar til lengri eða skemmri tíma þar sem tekið er mið af áhrifamætti fjölskylduheildarinnar og velferð hennar höfð að leiðarljósi. Þessi skilgreining byggist á hugmyndinni um fjölskyldu sem kerfi og vitund um að hver og einn verði fyrir áhrifum af því sem gerist í lífi annarra í sömu fjölskyldu eða tengslaneti.. Einstaklingar sem lenda í þeirri stöðu að slasast eða verða fyrir alvarlegum veikindum, líkamlega eða andlega, þurfa að takast á við breytt lífsmynstur sem setur því oft ýmsar skorður. Fjölskyldumeðferð er leið til að takast á við nýtt hlutskipti, styrkja tengsl og andlega líðan.


